mánudagur, nóvember 09, 2009

Datt allt í einu inn á gamla bloggið mitt sem ég hef ekki skrifað á í vel rúmt ár :-( svona hefur maður bara ekkert haft að segja í allri kreppunni, hálf gerð skrifkreppa í manni. Svo sem búin að vera hálfgerð skrappkreppa líka, en tilveran og lífið er svo sem ekki í neinni kreppu hjá mér, alltaf jafn gaman að lifa :-)

Ég er nú samt aðeins byrjuð að skrappa aftur og þá öll í digtalinu þar sem ég er núna með námskeið í vetur fyrir nokkar duglegar mömmur sem eru að gera Lífsbækur fyrir ættleiddu börnin sín. Virklega skemmtilegt að fara í gegnum þetta með þeim, ég er að gera fyrir mínar dætur báðar og má því hafa mig alla við að undirbúa námskeiðin og skrappa mínar síður líka :-) Veit hvað ég geri í mínu jólafríi.

Svo fer að líða að jólakortagerðinni, er alltaf að segja mér að nú ætli ég bara að digiskrappa þau og ekki föndra þau líka, en áður en ég veit er ég farin að hanna þau í huganum og segja mér að ég ælti nú bara að senda mínum nánust handunnið kort þessi jól, spurning hvað verður.

Er alveg búin að sjá að ég þarf miklu meiri frí tíma til að sinna öllum mínum áhugamálum, er með hausin fullan af ýmsum verkefnum sem mig langar að koma í framkvæmd en tímin ekki alveg eins mikill til framkvæmda :-( En hver veit nema maður fái smá tíma þegar vinnunni við þrotabúið (gömlu vinnunni minni) líkur og ég orðin atvinnulaus, kannski ég taki mér þá bara smá frí og sinni hugarefnum mínum í nokkar vikur áður en ég dembi mér út í vinnu. Ekki það að ég er líka með fullan hausin af hugmyndum sem væri gaman að sjá hvort gæfu eitthvað af sér, ótrúlega margt hægt að gera ef maður gefur sér smá tíma til að sjá hvernig hlutirnir þróast. Þannig að ég hvíði ekki verkefnaleysi ef ég fer ekki í vinnu strax aftur.
Ekki furða þó hausin á manni velti fram og aftur með allar þessar hugmyndir í honum hehe.

Trúlega engin sem kíkir hér inn ennþá, en ef þú gerir það endilega skildu eftir smá spor eftir þig í commentum :-)