Var ekki komið sumar??
Í bjartsýni minni í morgun rauk ég út í þunnum jakka í stuttermabol undir, þess fullviss að sumarið væri komið, skildi kuldagallan eftir heim á eldri stelpuna, en fór inn að ná í hann aftur. Ok, veit að sumardagurinn er ekki fyrr en á fimmtudaginn og kannski of snemmt að fagna ennþá, en þá ætlar líka dóttir mín í stuttbuxur og ekkert múður. Er alveg komin á það eftir þennan vetur að ef ekki væri nema fyrir bjartsýni okkar íslendinga um að betri veður sé alltaf handan næstu lægðar, þá væri þessi eyja í eyði. Það á allaveg við mig, ég lifi á því að þetta sé nú síðasta kuldahretið og jú að ég komist út til Köben kannski aðeins meiri hita en 10° í lok maí.
Sumrið er að koma bara daga spursmál hvenær það dettur inn, kannski ein vika, einn mánuður en það kemur.
mánudagur, apríl 21, 2008
föstudagur, apríl 18, 2008
Ætla ekki að reyna að segja að ég hafi verið dugleg að skrappa því það hefur bara ekkert gengið hjá mér, tímin fer í mikilvægari verkefni þessi kvöldin, en eftir sumardaginn fyrsta þá kannski næ ég að skrappa. Núna fara öll kvöld í að llesa yfir, laga, breyta og pússa heimasíðuna ættleiðing.is, skemmtilegt verk en tímafrekt, við erum nokkrar kvinnur í þessu verki og þetta þarf að klárst fyrir sumardaginn fyrsta sem það audda gerir.
Það er samt svo merkilegt að mér finnst líf mitt alltaf vera fullt af svona verkefnum sem ég þarf að klára á kvöldin þegar ég á minn frítíma frá vinnu og börnum. Ég virðist alltaf geta tekið á mig verkefni sem þarf að vinna, svo held ég alltaf að þegar þetta verk sé búið þá loksins hafi ég tíma en þá bara tekur annað við. Áður en ég byrjaði á þessu verki þá var ég í skattframtölum, er sem betur fer farin að kunna að segja nei þannig að ég slapp vel í ár. Þegar heimasíðan er komin í lag þá tekur við eitt lítið uppgjör í framkvæmdarstjórastöðunni minn, já vissuð þið að ég er framkvæmdarstjóri :-) yfir fyrirtæki sem á bara þó nokkuð af eignum, en ég er samt eini starfsmaðurinn í því og er búin að vera í vel rúmt ár, en furðulegt nokk ég hef ekki fengið krónu í laun, en samt mátti ég ákveða launin mín næstum sjálf. humm ekki í lagi.
En það getur verið gott að eiga inni hjá góðum eins og tengdó segir gjarnan, því ef ég fer nú að kaupa mér nytt hús þá er nú gott að eiga rúmlega árs framkvæmdarstjóralaun inni, ekki satt.
Fer að skoða einbýlishús í dag sem mér líst alveg einstaklega vel á er sett alltof mikið á, þannig að ég hef engan vegin efni á því, en það sakar ekki að skoða og kannski prófa að bjóða það sem við erum tilbúin að borga fyrir það, sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum í fasteignakaupum og ekkert selst, spurning hvort okkar selst ???? vantar einhverjum hús á besta stað í bænum??
Jæja nóg að af skrifum, best að vinna pínu pons og fara svo heim að leika við stelpurnar mínar :-) þar til ég fer að skoða húsið, gaman

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)