mánudagur, apríl 21, 2008

Var ekki komið sumar??

Í bjartsýni minni í morgun rauk ég út í þunnum jakka í stuttermabol undir, þess fullviss að sumarið væri komið, skildi kuldagallan eftir heim á eldri stelpuna, en fór inn að ná í hann aftur. Ok, veit að sumardagurinn er ekki fyrr en á fimmtudaginn og kannski of snemmt að fagna ennþá, en þá ætlar líka dóttir mín í stuttbuxur og ekkert múður. Er alveg komin á það eftir þennan vetur að ef ekki væri nema fyrir bjartsýni okkar íslendinga um að betri veður sé alltaf handan næstu lægðar, þá væri þessi eyja í eyði. Það á allaveg við mig, ég lifi á því að þetta sé nú síðasta kuldahretið og jú að ég komist út til Köben kannski aðeins meiri hita en 10° í lok maí.

Sumrið er að koma bara daga spursmál hvenær það dettur inn, kannski ein vika, einn mánuður en það kemur.

Engin ummæli: