Þar kom að því að ég set hér inn nýjar síður, er búin að vera að dunda aðeins í digitalskrappinu og finnst það voða gaman. Allt pappírsdótið liggur bara eitt og yfirgefið í föndurherberginu og enginn nennir að klappa því :-( . Ætli ég fari samt ekki að gefa því smá klappa fljótlega, má ekki detta út úr þvi alveg með allt nýja dótið sem ég á :-)
Ég er sem sagt búin að vera gera bæði síður sem eru svona imbaprúf þar sem ég geri lítið annað en að setja inn myndirnar, skreytti samt smá og gerði jú titla á það líka. Svo er ég búin að gera eina mynd þar sem ég nota svona Template þar sem búið er að gera formið á pappírnum getur maður sagt, svona fyrir þá sem ekki þekkja þetta, og þá þarf maður ekki að vera "klippa" pappírinn sjálfur til í forritinu. Voða þægilegt og fljótlegt form á þessu og maður bara velur pappír þar til maður er ánægður með niðurstöðuna og skreytir svo að vild. Hrein snild.
Hér koma svo herleg heitin, þessa fyrstu gerði ég svona til að prufa að vinna með template og hún er með mynd af Herdísi.
Svo gerði ég fjórar af þeim systrum í nýja sumar outfittinu sínu. Keypti á þær stuttbuxur, boli og derhúfur í Next á föstudaginn og það er óhætt að segja að þessi búningur sló í gegn. Þær vildu ólmar máta þegar þær sáu fötin og frá því kl. 4 og til 8 um kvöldið skottuðust þær um í fínu sumarfötunum sínum og fannst þær vera voðalegar fínar. Það var tekið mikið af myndum af þeim, enda ekki annað hægt þegar svona sætar stelpur og skemmtilegar eru annars vegar. Hlaupandi og knúsandi hverja aðra hér í gríð og erg svo montar með Danmerkur sumarfötin sín.
Finnst alveg snild að nota svona fyrir uppteknar húsmæður sem taka mikið af myndum en hafa ekki endalausan tíma í að skrappa þær, sparar líka að nota tölvuskrappið ef maður vill gefa þeim báðum albúm með myndum af þeim saman og sundur. Þetta kitt er eftir Alma Townsend og heitir Not Too Shabby, mjög flott og ég ætla mér að nota það meira og gera líka sjálf síður úr þessum pappír sem í því er.











