Það bara spænast undan mér síðurnar þessa daganna, eða þannig sko. Ein komin í viðbót í það minnsta. Hún er nú frekar skrautleg og helgast það kannski af einni góðri ástæðu. Þannig er mál með vexti að ég hef varið haldin mjög leiðum kvilla sem hefur stundum verið með smá verkjum. Hann lýsir sér þannig að ég tími ekki að nota sumt af því sem ég hef keypt mér af skrapp skrauti því ég ætla alltaf að nota það á einhverja aðra síðu sem ég er með í kollinum en kemst ekkert endilega í framkvæmd. Svo ég bara safna og safna að mér dóti og er einn sá mesti skrappnýskupúki sem fyrir finnst (hef reyndar trú um að þeir séu nokkuð margir svona skrapparnir inn í skápnum eins og ég er búin að vera lengi :o) Núna ákvað ég að hætta þessar vitleysu og loka nýskupúkan inn í skáp og koma út úr honum sjálf. Árangurinn er sem sagt þessi yfirhlaðin síða að rubon og blómum HEHE. En ég er samt bara nokkuð ánægð með hana. Myndin var smá ljót þarna í horninu þar sem ég setti rubbon skrautið og borðið er vel málað af eldri dóttir minni í sinni listsöpun þannig að ég ákvað að fela það með blóminu sem ég skar út úr pappírnum. :-)
föstudagur, apríl 13, 2007
Snemma beygist krókurinn
Herdís finnst mjög gaman að sitja og reikna á reiknivélina mína á meðan ég sit og skrapp en stundum þarf hún að spyrja mig um hvort reiknivélin sé að segja satt, treystir mér betur en vélinni, eins og sést á þessari mynd af henni þá er hún voða hugsi yfir þessu.
Ég notaðist við LO frá Becky Fleck og Basicgrey pappír úr Uraban Couture línunni, rubbonið er líka frá BG.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

8 ummæli:
ótrúlega fyndin mynd og titill! Svo flott síða!!! Bara gott hjá þér að nota það sem þú hefur ekki tímt að nota. Mitt mottó hjá skrappið er 'Alltaf hægt að kaupa meira ef klárast!'
ÆÆÆðisleg! Þetta er frábær mynd og titillinn fyndinn :) flott að skera blómið úr pappírnum og frábært hjá þér að nota upp lagerinn þinn :D
Æðisleg, alltaf jafn falleg daman og svo erum við hættar að geyma dótið til betri tíma....he he
Mér finnst síðan ekkert ofhlaðin - hún er fullkomin :)
Skrappáramótaheitið mitt var einmitt að hætta nískunni og nota flotta dótið á meðan mér finnst það en flott... það er svo mikið skemmtilegra þannig :)
Skemmtileg mynd og falleg síða. Mér finnst hún ekkert ofhlaðin - enda er ég mikill aðdáandi mikið skreyttra síðna :-)
Þetta nískudæmi kannast ég ekkert við, það er bónusinn við að vera bara í tölvuskrappi - það er alveg sama hvað maður notar dótið mikið, það klárast aldrei!!
Satt Lilja og ég hugsa oft til þess þegar ég er að skrappa.
Tölvuskrappið hefur nokkra kosti umfram pappírsskrappið. En það hefur síða kosti líka :-)
gilla
Rosa flott síða hjá þér og mjög flott þetta LO.
Ég kannast sko við þetta að "spara" fína dótið mitt og eina sem ég hef haft upp úr því er að það úreldist og eitthvað nýtt og flottara kemur í staðinn. Ég á því fullt af dóti sem mig langar jafnvel ekkert að nota lengur og ætla að passa mig að nota allt jafnóðum ;)
geggjuð síða! Ég þjáist af sama kvilla og loksins þegar mér hugnast að nota draslið þá er það orðið úrelt og hallærislegt!! LOLOL
Skrifa ummæli