Datt allt í einu inn á gamla bloggið mitt sem ég hef ekki skrifað á í vel rúmt ár :-( svona hefur maður bara ekkert haft að segja í allri kreppunni, hálf gerð skrifkreppa í manni. Svo sem búin að vera hálfgerð skrappkreppa líka, en tilveran og lífið er svo sem ekki í neinni kreppu hjá mér, alltaf jafn gaman að lifa :-)
Ég er nú samt aðeins byrjuð að skrappa aftur og þá öll í digtalinu þar sem ég er núna með námskeið í vetur fyrir nokkar duglegar mömmur sem eru að gera Lífsbækur fyrir ættleiddu börnin sín. Virklega skemmtilegt að fara í gegnum þetta með þeim, ég er að gera fyrir mínar dætur báðar og má því hafa mig alla við að undirbúa námskeiðin og skrappa mínar síður líka :-) Veit hvað ég geri í mínu jólafríi.
Svo fer að líða að jólakortagerðinni, er alltaf að segja mér að nú ætli ég bara að digiskrappa þau og ekki föndra þau líka, en áður en ég veit er ég farin að hanna þau í huganum og segja mér að ég ælti nú bara að senda mínum nánust handunnið kort þessi jól, spurning hvað verður.
Er alveg búin að sjá að ég þarf miklu meiri frí tíma til að sinna öllum mínum áhugamálum, er með hausin fullan af ýmsum verkefnum sem mig langar að koma í framkvæmd en tímin ekki alveg eins mikill til framkvæmda :-( En hver veit nema maður fái smá tíma þegar vinnunni við þrotabúið (gömlu vinnunni minni) líkur og ég orðin atvinnulaus, kannski ég taki mér þá bara smá frí og sinni hugarefnum mínum í nokkar vikur áður en ég dembi mér út í vinnu. Ekki það að ég er líka með fullan hausin af hugmyndum sem væri gaman að sjá hvort gæfu eitthvað af sér, ótrúlega margt hægt að gera ef maður gefur sér smá tíma til að sjá hvernig hlutirnir þróast. Þannig að ég hvíði ekki verkefnaleysi ef ég fer ekki í vinnu strax aftur.
Ekki furða þó hausin á manni velti fram og aftur með allar þessar hugmyndir í honum hehe.
Trúlega engin sem kíkir hér inn ennþá, en ef þú gerir það endilega skildu eftir smá spor eftir þig í commentum :-)
mánudagur, nóvember 09, 2009
miðvikudagur, september 10, 2008
Það er óhætt að segja rútían hafi breyst aðeins hjá mér síðustu vikurnar, farin að vakna kl. 7, sem í sjálfu sér ekkert svo nýtt, þar sem morgunhanarnir mínir hafa oftast verið vaknaðir um kl. 7 kannski rúmlega þó. Allir farnir út um kl. 8 og í skóla og vinnu, og við tekur umferðarteppa, eitthvað sem ég hef næstum bara aldrei lent í hér í bæ síðustu árin, kannski 2-3. Enda alltaf jafn saklaust þegar ég lendi í þannig og er alltaf viss um að nú hafi einhver staðar orðið slys. Er búin að læra það að það er ekkert alvarlegt slys annað en það að allir Hafnfirðingar og Garðbæingar eru að koma sér í vinnuna og vinna flestir í Reykjavík, svona rétt eins og við Kópavogsbúar, sem reynum að troða okkur inn á milli þeirra í bílaröðinni svo við getum blandast umferðinni við Reykjvíkinga. Mikið er ég samt glöð að það eru ekki alltaf einhverjir að slasa sig í umferðinni kl. 8, væri frekar dapurt það. Ég set því bara Mamma Mía í botn og spila og syng alla leiðini í vinnuna með bros á vör, hef bara lengri tíma til að hlusta núna en áður, alveg 3 lögum meir sem ég næ að hlusta :-)
Hætti svo i vinnunni kl. 2 og ekki seinna til að ná í skólastelpuna fyrir hálf 3, og leikskólastelpuna mína fyrir kl. 3. En mér skilst að þær séu ásamt mér í forréttinda hóp að geta farið heim þetta snemma á daginn, ekki amalegt það :-) enda ekki börnum bjóðandi að vera í dægradvöl, sérstakalega ekki í Smáraskóla alltof mikil læti þar fyrir börn í marga tíma á dag. Það sem börnum er ekki boðið upp á í þessu þjóðfélagi, alveg með ólíkindum, vildir þú vinna innan um 75 manns í smá rími og allir töluðu í einu eða í það minnsta 30 þeirra??? nei held að fáir mundi láta bjóða sér það, en það virðist vera í lagi að bjóða börnum að vera í þannig upp í 4 tíma á dag.
Svo er að reyna að koma sér í ræktina aftur eftir alltof langt sumarfrí, er búin að fara 2 sem er nú bara skrambi gott og stefni á ferð í dag eða morgun, sko mína.

mánudagur, ágúst 18, 2008
Kl. er 10:30 og hér gengur maður fram hjá í svörtum frakka, í svörtum buxum, með regnhlíf í hendi (ef hann er rigningarlegur úti þá er hún með í för) Þetta gerir hann alla daga stundvíslega kl. 10:30, stundum 1-2 mínútum of snemma, stundum 1-2 mín. of seint. Ef hann mætir ekki þá er hann trúlega veikur, ekki það að hann lítur úr fyrir að vera veikur alla daga og ekki líklegur til að vera mæta í vinnu, aldur hans og útlit benda ekki til þess. Hvert hann fer er ekki gott að segja, en stundvís er maðurinn svo mikið er víst. Í tvö ár í það minnsta hefur hann gengið hér framhjá og ekki misst úr dag sem ég hef verið í vinnu hér. Hvert hann fer er okkur ráðgáta, spurning um að elta hann einn daginn.....
Já, það er merkileg flóra fólks sem ber fyrir augu manns hér út um gluggan, enda mikil umferð fólks hér út og inn í húsið.
Já, það er merkileg flóra fólks sem ber fyrir augu manns hér út um gluggan, enda mikil umferð fólks hér út og inn í húsið.
miðvikudagur, ágúst 06, 2008
Fríið búið
Þá er sumarfríið búið í þetta sinn og vinnan tekin við, verð nú að segja að það er nú alltaf smá gott að komast í vinnuna aftur og sína daglegu rútínu, bæði fyrir mig og dæturnar og tala nú ekki eiginmanninn sem finnst svo gaman í vinnunni sinn :-)
Meira segja eins og vinnan hafi gefið mér auka orku, þar sem ég ryksugaði og skýraði hér yfir eftir heimkomu og nú þarf ég að fara taka smá til í frístundarherberginu mínu, tvær ungar dömur búnar að vera duglegar að lita og klippa hér síðustu daga og því mikið um niðurklipp hér og þar og liti út og suður.
Stór skrapp ákvörðun
Það hefur aukið mér leti í skrappinu að geta ekki tekið ákvörðun um að skrappa annað hvort í pappír eða digital. Finnst taka svo langan tíma oft að skrappa í pappír og meira svona maus. Digið er svo þrifalegt, auðvelt og þægilegt að geyma, ekkert drasl sem fylgir því.
Þannig að núna ætla ég að skrappa í digital alla svona viðburði sem kalla á margar myndir á síður eða segjum 2 eða fleiri, eins og sveitaferðir, ferðir erlendis, útilegur, jól, páska og þess háttar. En í pappír ætla ég meira að skrappa svona flottar og skemmtilegar myndir sem ég næ af skottunum mínum. Eitt þarf ég þó að gera í pappír og það er ferðin okkar til Kína að ná í yngri dóttirina, því ég vil að þær eigi eins albúm um þær ferðir. Er byrjuð og þarf að vera dugleg í vetur að klára.
Þessi ákvörðun laust niður í kolli mér í gær við að skoða digital síður hjá einni skrappkonu og með það sama var ég byrjuð á fyrstu síðunni í diginu. Svo er bara að skella sér í smá kaup á netinu til að endurnýja smá úrvalið hjá mér :-) ódýrari kaup og engin sér hvað ég kaupi mikið hehe.
Motto dagsins: skrapp er skemmtileg þegar maður skrappar

laugardagur, ágúst 02, 2008
Sundlaugar
Við fjölskyldan erum búin að vera nokkuð dugleg á okkar mælikvarða að fara í sund í sumar og prófað nokkrar nýjar sundlaugar. Ótrúlegt hvað sumar sundlaugar fá að drabbast niður í skítunum, ein þannig er í Hafnarfirðinum, eftir mína fyrstu ferð þanngað var ég ákveðin í að sú ferð væri jafnframt mín síðasta. Þetta er Suðurbæjarlaugin, í búningsklefunum og sturtunum er angandi hlandlykt og manni fannst maður ganga út skýtugur eftir þessa ferð. Sundlaugin, pottarnir og allt það er svo sem í góðu en búningsklefarnir fá algjöra falleinkunn.
Við höfum aðeins farið í sundlaugar úti á landi, og þær eiga það flestar sammerkt að þær hafa oftast verið svo stútfullar að það hefur verið liggur við rass við rass í surtum og klefum, og eins og þar vanti alveg starfsfólki í klefanna til að þurrka yfir gólfin af og til. Í sundlauginni á Hellum þurfti einn gesturinn að missa sig við starfsfólkið til að hætt væri að hleypa ofan í, klefarnir voru orðnir svo skítugir og fullir af fólki að ekki var hægt að komast þar fyrir nema troða sér, 5 sturtur önnuðu engan vegin umferðinni þannig að margir fóru óþvegnir ofan í, sem svo aftur sást á pottunum sem voru orðinir vel skýtugir. Sundlaugin í Hrafnargili var fín og allt úti við mjög flott og fínt, en þar var sama sagan með búningsklefanna, engin til að renna yfir gólfin til að taka mesta skítin af, þannig að sundlaugagestir voru farnir að gera það sjálfir þegar þeim óaði að stíga í öll hárin og skýtinn. Sundlaugin í Mývatnsveit skar sig svo algjörlega úr, þar fannst mér ég vera ganga inn í skurðstofu, allt svo hreint og fínt þar, gangar skýnandi fínir og hreinir og sama um búnings- og sturtuklefanna. Mætti senda starfsmenn hinna þriggja sundlauganna á námskeið hjá þeim, en á móti kom að það var ekki eins mikill fjöldi þar þegar við fórum þanngað, vorum í raun næstum í einkasundlaug.
Kópavogur stendur sig svo líka vel með sínar sundlaugar, hafa alltaf verið vel þrifnir og fínir klefarnir þar og ég því stolt af mínu sveitafélagi :-) og fer líka oftast í þær laugar.
Smá úttekt á sundlaugamálum, niðurstaðan er að of mikill sóðaskapur er í búningsklefunum en sundlaugarnar sjálfar fínar.
föstudagur, júlí 11, 2008
Nýjasta skrappið
Búin að afreka fyrstu opnuna í ferðasögunni hennar Herdísar þegar við náðum í hana til Kína. Verð bara að fara drífa í að gera ferðabókina hennar, því þegar við skoðum bókina hennar Ellýar þá spyr hún alltaf hvar mydirnar af sér eru, segir svo sætt: "engin Heddís bókinni?" og þegar ég segi nei og útskýri fyrir henni þá kemur þungt "ohhhh" og ég fæ alltaf smá sting og sé að ég verð að fara gera hennar. Hér kemur fyrsta opnan:
Svo er hér ein með myndum af Herdísi þegar hún var að læra á hlaupahjólið, hún var svo einbeitt og ákveðið í að hún gæti þetta að hún gafst ekki upp og á endanum fór hún um alla götu á því og lyfti öðrum fæti svo hátt og fagmannlega upp :-)

sunnudagur, júlí 06, 2008
Undur og stórvirki
Ég hafði það loksins af að byrja á fyrstu síðunni í ferðasögunni hennar Herdísar, þegar við fórum að ná í hana. Fyrsta opnan er langt komin og kemur vonandi hér inn innan nokkra daga. Skrappandin er svona alveg að ná að komast á stað, tekur tíma en vonandi næg ég að skrappa smá í sumarfríinu þau kvöld sem við verðum heima.
Verður samt ekkert skrappað í kvöld því nú bíður mín mynd að horfa á með bónda mínum, mynd sem ég er búin að ritskoða aðeins, því stundum eiga myndir sem hann velur til áhorfunar það til að vera "geymgamanmyndir" það eru myndir sem virðast í upphafi vera gamanmyndir og en þegar á líður eru þær orðnar svo ógeðslegar, annað hvort ofbeldið orðið svo yfirgengilegt og ógeðslegt eða það sem átti að vera fyndið orðið að einhverju sem er bara bull og kjaftæði og á rætur sínar að rekja til einhverra geymvera eða andlegar orku eða hvað það nú kallast. Prófum eina í síðustu viku og ég gafst upp eftir um 20 mín, þá var ég búin að fá nóg. Sé ekki ástæðu til að horfa á blóðidrifnar myndir sem eru bara kjaftæði út í eitt, ofbeldi á ekki að vera að eitthvað sem er sjálfsagt að horfa á, það endar bara illa fyrir siðferði okkar og lækkar það bara, því það sem maður horfir of oft á verður að sjálfsögðum hlut með tímanum.
Annars erum við komin í sumarfrí og höfum það bara gott, dundum heima trúleg þessa vikuna, að mestu, málum og förum í suttar ferðir hingað og þangað eins og nenna og verður leyfir.
Mottó dagsins. Hver dagur er dásamlegur
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)