Það er óhætt að segja rútían hafi breyst aðeins hjá mér síðustu vikurnar, farin að vakna kl. 7, sem í sjálfu sér ekkert svo nýtt, þar sem morgunhanarnir mínir hafa oftast verið vaknaðir um kl. 7 kannski rúmlega þó. Allir farnir út um kl. 8 og í skóla og vinnu, og við tekur umferðarteppa, eitthvað sem ég hef næstum bara aldrei lent í hér í bæ síðustu árin, kannski 2-3. Enda alltaf jafn saklaust þegar ég lendi í þannig og er alltaf viss um að nú hafi einhver staðar orðið slys. Er búin að læra það að það er ekkert alvarlegt slys annað en það að allir Hafnfirðingar og Garðbæingar eru að koma sér í vinnuna og vinna flestir í Reykjavík, svona rétt eins og við Kópavogsbúar, sem reynum að troða okkur inn á milli þeirra í bílaröðinni svo við getum blandast umferðinni við Reykjvíkinga. Mikið er ég samt glöð að það eru ekki alltaf einhverjir að slasa sig í umferðinni kl. 8, væri frekar dapurt það. Ég set því bara Mamma Mía í botn og spila og syng alla leiðini í vinnuna með bros á vör, hef bara lengri tíma til að hlusta núna en áður, alveg 3 lögum meir sem ég næ að hlusta :-)
Hætti svo i vinnunni kl. 2 og ekki seinna til að ná í skólastelpuna fyrir hálf 3, og leikskólastelpuna mína fyrir kl. 3. En mér skilst að þær séu ásamt mér í forréttinda hóp að geta farið heim þetta snemma á daginn, ekki amalegt það :-) enda ekki börnum bjóðandi að vera í dægradvöl, sérstakalega ekki í Smáraskóla alltof mikil læti þar fyrir börn í marga tíma á dag. Það sem börnum er ekki boðið upp á í þessu þjóðfélagi, alveg með ólíkindum, vildir þú vinna innan um 75 manns í smá rími og allir töluðu í einu eða í það minnsta 30 þeirra??? nei held að fáir mundi láta bjóða sér það, en það virðist vera í lagi að bjóða börnum að vera í þannig upp í 4 tíma á dag.
Svo er að reyna að koma sér í ræktina aftur eftir alltof langt sumarfrí, er búin að fara 2 sem er nú bara skrambi gott og stefni á ferð í dag eða morgun, sko mína.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli