mánudagur, ágúst 18, 2008

Kl. er 10:30 og hér gengur maður fram hjá í svörtum frakka, í svörtum buxum, með regnhlíf í hendi (ef hann er rigningarlegur úti þá er hún með í för) Þetta gerir hann alla daga stundvíslega kl. 10:30, stundum 1-2 mínútum of snemma, stundum 1-2 mín. of seint. Ef hann mætir ekki þá er hann trúlega veikur, ekki það að hann lítur úr fyrir að vera veikur alla daga og ekki líklegur til að vera mæta í vinnu, aldur hans og útlit benda ekki til þess. Hvert hann fer er ekki gott að segja, en stundvís er maðurinn svo mikið er víst. Í tvö ár í það minnsta hefur hann gengið hér framhjá og ekki misst úr dag sem ég hef verið í vinnu hér. Hvert hann fer er okkur ráðgáta, spurning um að elta hann einn daginn.....
Já, það er merkileg flóra fólks sem ber fyrir augu manns hér út um gluggan, enda mikil umferð fólks hér út og inn í húsið.

Engin ummæli: