miðvikudagur, ágúst 06, 2008

Fríið búið

Þá er sumarfríið búið í þetta sinn og vinnan tekin við, verð nú að segja að það er nú alltaf smá gott að komast í vinnuna aftur og sína daglegu rútínu, bæði fyrir mig og dæturnar og tala nú ekki eiginmanninn sem finnst svo gaman í vinnunni sinn :-)
Meira segja eins og vinnan hafi gefið mér auka orku, þar sem ég ryksugaði og skýraði hér yfir eftir heimkomu og nú þarf ég að fara taka smá til í frístundarherberginu mínu, tvær ungar dömur búnar að vera duglegar að lita og klippa hér síðustu daga og því mikið um niðurklipp hér og þar og liti út og suður.

Stór skrapp ákvörðun

Það hefur aukið mér leti í skrappinu að geta ekki tekið ákvörðun um að skrappa annað hvort í pappír eða digital. Finnst taka svo langan tíma oft að skrappa í pappír og meira svona maus. Digið er svo þrifalegt, auðvelt og þægilegt að geyma, ekkert drasl sem fylgir því.
Þannig að núna ætla ég að skrappa í digital alla svona viðburði sem kalla á margar myndir á síður eða segjum 2 eða fleiri, eins og sveitaferðir, ferðir erlendis, útilegur, jól, páska og þess háttar. En í pappír ætla ég meira að skrappa svona flottar og skemmtilegar myndir sem ég næ af skottunum mínum. Eitt þarf ég þó að gera í pappír og það er ferðin okkar til Kína að ná í yngri dóttirina, því ég vil að þær eigi eins albúm um þær ferðir. Er byrjuð og þarf að vera dugleg í vetur að klára.
Þessi ákvörðun laust niður í kolli mér í gær við að skoða digital síður hjá einni skrappkonu og með það sama var ég byrjuð á fyrstu síðunni í diginu. Svo er bara að skella sér í smá kaup á netinu til að endurnýja smá úrvalið hjá mér :-) ódýrari kaup og engin sér hvað ég kaupi mikið hehe.

Motto dagsins: skrapp er skemmtileg þegar maður skrappar

1 ummæli:

kristinvald sagði...

Hæ hæ
Góð ákvörðun hjá þér Gilla, tölvuskrappið er málið...hehe...allavega fyrir mig (veit að pappírsskrappararnir eru ekki sammála;-))
Gaman að sjá síðurnar þínar á Kínaspjallinu, hlakka til að sjá fleiri !

Kristín