Sundlaugar
Við fjölskyldan erum búin að vera nokkuð dugleg á okkar mælikvarða að fara í sund í sumar og prófað nokkrar nýjar sundlaugar. Ótrúlegt hvað sumar sundlaugar fá að drabbast niður í skítunum, ein þannig er í Hafnarfirðinum, eftir mína fyrstu ferð þanngað var ég ákveðin í að sú ferð væri jafnframt mín síðasta. Þetta er Suðurbæjarlaugin, í búningsklefunum og sturtunum er angandi hlandlykt og manni fannst maður ganga út skýtugur eftir þessa ferð. Sundlaugin, pottarnir og allt það er svo sem í góðu en búningsklefarnir fá algjöra falleinkunn.
Við höfum aðeins farið í sundlaugar úti á landi, og þær eiga það flestar sammerkt að þær hafa oftast verið svo stútfullar að það hefur verið liggur við rass við rass í surtum og klefum, og eins og þar vanti alveg starfsfólki í klefanna til að þurrka yfir gólfin af og til. Í sundlauginni á Hellum þurfti einn gesturinn að missa sig við starfsfólkið til að hætt væri að hleypa ofan í, klefarnir voru orðnir svo skítugir og fullir af fólki að ekki var hægt að komast þar fyrir nema troða sér, 5 sturtur önnuðu engan vegin umferðinni þannig að margir fóru óþvegnir ofan í, sem svo aftur sást á pottunum sem voru orðinir vel skýtugir. Sundlaugin í Hrafnargili var fín og allt úti við mjög flott og fínt, en þar var sama sagan með búningsklefanna, engin til að renna yfir gólfin til að taka mesta skítin af, þannig að sundlaugagestir voru farnir að gera það sjálfir þegar þeim óaði að stíga í öll hárin og skýtinn. Sundlaugin í Mývatnsveit skar sig svo algjörlega úr, þar fannst mér ég vera ganga inn í skurðstofu, allt svo hreint og fínt þar, gangar skýnandi fínir og hreinir og sama um búnings- og sturtuklefanna. Mætti senda starfsmenn hinna þriggja sundlauganna á námskeið hjá þeim, en á móti kom að það var ekki eins mikill fjöldi þar þegar við fórum þanngað, vorum í raun næstum í einkasundlaug.
Kópavogur stendur sig svo líka vel með sínar sundlaugar, hafa alltaf verið vel þrifnir og fínir klefarnir þar og ég því stolt af mínu sveitafélagi :-) og fer líka oftast í þær laugar.
Smá úttekt á sundlaugamálum, niðurstaðan er að of mikill sóðaskapur er í búningsklefunum en sundlaugarnar sjálfar fínar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli