föstudagur, júlí 11, 2008

Nýjasta skrappið

Búin að afreka fyrstu opnuna í ferðasögunni hennar Herdísar þegar við náðum í hana til Kína. Verð bara að fara drífa í að gera ferðabókina hennar, því þegar við skoðum bókina hennar Ellýar þá spyr hún alltaf hvar mydirnar af sér eru, segir svo sætt: "engin Heddís bókinni?" og þegar ég segi nei og útskýri fyrir henni þá kemur þungt "ohhhh" og ég fæ alltaf smá sting og sé að ég verð að fara gera hennar. Hér kemur fyrsta opnan:







Svo er hér ein með myndum af Herdísi þegar hún var að læra á hlaupahjólið, hún var svo einbeitt og ákveðið í að hún gæti þetta að hún gafst ekki upp og á endanum fór hún um alla götu á því og lyfti öðrum fæti svo hátt og fagmannlega upp :-)





Engin ummæli: