Gleðilegt Skrappsumar
Ég fór í Smáralindina í dag með stelpurnar mínar að horfa á lítinn frænda minn syngja með söngskóla Maríu og horfa á Skoppu og Skrítlu auðvitað. Nema þegar við erum á heimleið fór ég í Nóatún að kaupa smá og þaðan í Ísbúiðina að kaupa ís. Þegar ég er búin að bíða í lengri tíma í ísbúðinni þá sé ég að ég hef gleymt pokanum mínum í Nóatúni og fer að ná í hann og fer svo heim. Þegar heim er komið og ég fer að taka dótið út úr bílnum sé ég að ég hef gleymt íspokanum í ísbúðinni.
Er hægt að vera svona innilega heilalaus, finnst ég bara heppin að hafa munað eftir báðum
stelpunum. Var ekkert smá fúl búin að hlakka til að gæða mér að ísnum úti í sólinni í hengirólnunni :( Maðurinn minn fór því og keypti nýjan ís handa okkur og hughreysti mig um að þetta gæri gerst hjá bestu konum. Eitt er víst það verður tekin aukaskammtur af Omega 3 næstu morgna til að reyna stækka þetta heilabú aðeins.
Af skrappinu er það annars að frétta að ég er búin með þrjár síður í ferðaalbúminu okkar frá Danmerkurferðinni í fyrra og byrjuð á 4. Sé samt fram á að þetta verði frekar margar síður þar sem myndirnar eru alveg grilljón og auðvitað margar sem verður að skrappa úr.
Gleðilegt skrappsumar, hér á þessum bæ á að skrappa sem aldrei fyrr í sumar, enda af nógu af taka.

3 ummæli:
Hehe...það hefur aldeilis eitthvað skroppið saman þarna í toppstykkinu og stelpurnar heppnar að þú skyldir muna eftir þeim. Þú hefur örugglega fengið mun betri ís í staðinn :)
Hihihi :) ég gat ekki annað en að brosa :D
Gleðilegt skrapp sumar,
Sandra
LOl
enn gleðilegt skrapp sumar líka þó það sé smá liðið á það, enn betra seint enn aldrei.
hlakka til að sjá fleiri síður frá þér.
Skrifa ummæli