mánudagur, júní 25, 2007

Komin heim aftur


Þá er maður komin heim aftur úr Danmerkurferðinni, var stoppað stutt heima eftir heimkomu þaðan. Rétt náðum að taka upp úr töskum og þvo til að pakka niður aftur og skella í töskur til að fara í útilegu með Kínahópnum okkar sem fór með okkur út þegar við náðum í Ellý Rún. Frábær helgi með 9 skemmtilegum fjölskyldum og 11 yndislegum börnum, því þeim hefur jú fjölgað um 2 síðan við komum heim með stelpurnar 10 (vantaði þvi miður eina fjölskyldu í útileguna) og við sjáum fram á ennþá meiri fjölgun í hópnum, erum að vona að það verða jafnvel komin 3 börn í hópinn í viðbót í útilegu að ári og vonandi 3 í viðbót ef ekki fleiri eftir 2 ár.
Að skrappinu, ég var ekki eins duglega að tölvuskrappa og ég hafi ætlað mér í fríinu, náði aðeins að gera tvær tölvuskrappsíður með myndum af þeim systrum. Maður var einfaldlega bara svo þreyttur á kvöldin að ég nennti ekki neinu nema lesa og horfa á imban. Hitinn gerir mann latan svo ekki sé meira sagt, norðankulið hér heima hressir mann við og maður verður ekki svona dasaður. Ég er með á dagskránni að taka til í skrappherberginu mínu í vikunni og koma mér í skrappgírinn á kvöldin í það minnsta. Verð trúlega að fara vinna nokkra morgna núna næstu daga en skrappa svo bara þegar rignir á daginn þegar ég kem heima, en vonandi verða nú ekki margir rigningardagar í sumar.

Þessi mynd er tekin á fyrsta degi okkar úti í Danmörk, en þá var smá rigning hjá okkur, þeim systrum fannst svo gaman að ganga í gegnum grasið sem náði þeim næstum uppfyrir haus.





Við skelltum okkur svo á ströndina hjá bústaðinum til að taka hana út, hún var bara fín og var farið þanngað aftur en þá með sundfötin með sér. Þær systur dunduðu þarna vel og lengi og fannst voða gaman að sulla í sjónum.






4 ummæli:

Þórunn sagði...

velkomin heim!! rosalega flottar síður!

Nafnlaus sagði...

vá hvað þessar eru flottar :)

Nafnlaus sagði...

Æðislega flottar síður hjá þér :)

MagZ Mjuka sagði...

æðislegar síður og algjörar snúllubínur sem þú átt! :D