Það er með þetta að taka sig á og skrifa, það er ekki að virka fyrir mig svo mikið er víst. Þrátt fyrir einbeittan vilja þá gengur bara ekkert í þessu skriftarátaki. Þegar ég svo var komin í skriftar stuð þá bara gat ég engan vegin munað hvað lykilorðið er og ekki einu sinni munað að ég hafi skrifað það niður í lykilorða forritið mitt. En ég hef reyndar verið haldin alsherjar gleymsku á lykilorð síðustu daga, gleymdi lykilorðin á einkabankan minn hjá LÍ og líka hjá Kaupþingbankanum. Það er svona þegar maður þarf að hafa að gang að mörgum netbönkum þá hlýtur minnið í manni að hrynja af og til, að muna fyrir 10 bankaaðganga er farið að valda mér smá ruglingi á köflu.
Skrapplífið hefur verið frekar dapurt upp á síðkastið, hef aðeins náð að gera 2 síður það sem af er janúar, þar kemur inn í að við hjónin vorum að hafa vistaskipti, eiginmaðurinn farin út í sjálfstæðan rekstur og fékk því bílskúrinn fyrir sig og ég herbergið, held að þetta séu mjög góð skipti, ég nær stelpunum þegar þær detta í leik eða horfa á sjónvarpið og hann í meira næði þegar hann þarf að vinna. HVer veit nema ég nái að afkasta eitthvað núna fljótlega, nóg af hugmyndum í kollinum á manni sem mig langar til að framkvæma, en alltaf smá spurningin um tíman.
Ég er hætt að fara í átak í skriftum hér en á vonandi eftir að lífga þessa síðu aðeins við, þó ekki sé nema með almennum þankagangi um lífið og tilveruna en þó skrappið þegar það kemur eitthvað frá mér.
Þar til síðar en vonandi ekki ári síðar, farið vel með ykkur ef einhver rekst hér inn ennþá :-)
miðvikudagur, janúar 30, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli