Blómabörn og Sólargeislar
Já, það er fjör og það er fjör, og svona líka í þessu tölvuskrappi. Ég er alveg að missa mig í því eins og kannski sést á fjölda mynda hjá mér. Sat við í gærkveldi eftir að litlar dömur voru komnar í fasta svefn og tölvuskrappaðist á fullu. Á orðið gott safn af kittum, þökk sé Lilju tölvuskrappsdrottningu og nóg úr að velja því af pappír og dúllerí.
Ég gerði blómasíður af blóma stelpunum mínum úr þessa flotta kittum sem ég notaði í síðustu færslu, finnst litirnir í því svo fallegir, brúnt og bleikt er voðalega mikið inn hjá mér þessa daganna. Notaði fyrirfram gert LO og því fljótlegt að skella svona síðum saman. Hér má sjá myndir af blómastelpunum mínum:

Svo gerði ég eina svona í hefðbundum litum með sólargeislum lífs míns, Lo er líka svona fyrirfram mótað en ég breytti því aðeins, hef aldrei getað farið beint eftir uppskriftum og alltaf breytt út af þeim og á trúlega eftir að gera það í þessu föndri líka eins og annarri handavinnu sem ég hef tekið mér fyrir hendur.

Að lokum gerði ég þessa, finnst litirnir í henni alveg æðislegir og tala nú ekki um fyrirsætuna sjálfa, hún er nú alltaf jafn falleg. Ég breytti þessu LO þó nokkuð, það var dútl á henni sem mér fannst ekki nógu fallegt og sett því þetta overlay í staðin yfir, bæti nokkrum fiðrildum við og strokkaði smá út af því, þar sem það lenti ekki á réttum stöðum. Mér finnst myndin ekki þurfa neinn titill, hún stendur alveg undir sér án hans.


4 ummæli:
geggjað flottar síður hjá þér !!! greinilegt að digisk á vel við þig
ferlega flottar síður allar!!
geggjaðar síður, sérstaklega þessi neðsta!!
Flottar alle sammen :)
Skrifa ummæli