Tvær nýjar
Búin að skrappa tvær tölvuskrappsmyndir síðustu daga, afköstin ekkert verið gífurleg þar sem ég datt ofan í sjónvarpsgláp í fyrsta sinn í ótrúlega marga mánuði. Hef ekki setið á kvöldin og horft á sjónvarp síðan ég veit ekki hvenær, trúlega í ár eða meir. Fyrir valinu var Desperat Housewafe, ég sá fram á að ég yrði aldrei hæf í umræðu á elliheimilunu þegar þar að kemur ef ég fer ekki að horfa á eitthvað af þessum þáttum sem allar konur á íslandi horfa á. Ég á þvi mikið verk eftir óunnið í sjónvarpsglápi því þetta er svo margir þættir og margar seríur og svo eru fleiri þættir sem ég á líka eftir að vinna upp. Góða við þetta að ég næ að horfa á alveg 3-4 þætti á kvöldi ef ég er dugleg og sit við og næ að skrappa kannski 1-2 myndir þegar ég fer að þjálfast í að skrappa með í tölvunni.En hér koma þessar síður sem ég er búin að gera síðustu daganna.
Sú fyrsta er unninn eftir LO sem er svona fyrirfram gert, það er úr kitti sem heitir Playful spring og fyrirsætan er hún Herdís að leika sér í Hreyfilandi, en þar erum við í leikfimi einu sinni í viku og hún alveg elskar að vera þar.

Næsta síða er gerð eftir LO sem Þórunn setti inn á ættleiðingarskrappspjallið okkar og við áttum að skrapplyfta. Þar er sama fyrirsæta að borða banana og nokkuð roggin á svipinn. En henni finnst hún voða stór þegar hún situr upp í stólnum hennar Ellýar og borðar banana þar, eins og sjá má. Þessi síða er úr kitti sem heitir Shade Garden.

12 ummæli:
Þær eru svo sætar, stelpurnar þínar, Gilla :)
Og gaman að sjá dugnaðinn í þér... flottar síður...
Skrappkveðjur frá ekki eins duglegri ;)
Glæsilegar síður Gilla!! Ég er alveg ótrúlega hrifin af báðum kittunum sem þú ert að nota - ferlega notendavæn og svo líka augnakonfekt (það er reyndar fyrirsætan líka :-)
æðislegar þessar síður og jæks flott lo hennar Þórunnar ,verð að prufa það
Vá þessar eru sko flottar hjá þér :) ...þú ert bara orðin snillingur í tölvuskrappinu.
Æðislega flottar síður :) Geggjað kittið á fyrstu síðunni! Blómin eru sjúklega flott! Þórunnar lo er baaaara flott... hlakka til að komast í að nota það :)
vá glæsilegar, má maður vita hvar þú ert að kaupa þessi kitt? ekkert smá flott.
Ótrúlega flott!!!!
En ég veit ekki alveg hvað mér er að finnast um það að vera nánast ein um að kunna þetta EKKI :/
Nú verð ég að komast í einkatíma hjá fr. Þórunni :D
Heyrðu Gilla mín, það er nokkuð ljóst að ég verð nú alveg endilega að fara að komast af stað í tölvuskrappinu, hvenær verður námskeið hjá þér? Þarf snilling eins og þig til að koma mér af stað held ég bara.
Kv. Elín
æðislegar síður báðar tvær!! finnst litirnir á fyrri síðunni algert æði!!
vá hvað þetta er flottar síður hjá þér :O)
svakalega fallegar síður hjá þér
vává þessi er bara geggjuð :D
Skrifa ummæli