fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Ein glæ ný
Var að gera þessa síðu í tölvuskrappinu í kvöld, fínt að horfa á einn sjónvarpsþátt og gera eins síðu í leiðinni. Myndirnar eru síðan við fórum fjölskyldan í göngutúr á leikvöll í næsta hverfi, Ellý kallar þetta leiksvæði fyrir Ellý róló en hún og pabbi hennar hafa farið í nokkur skipti á hann. Herdís skemmti sér konunglega eins og alltaf og það gerðum við reyndar öll, fengum sms á meðan dvöl okkar stóð og okkur óskað til hamingju með daginn og þá mundum við hjónin að þetta var víst afmælisdagur okkar hjóna, sem sagt 12 ára brúðkaupsafmæli :-) þann 29. júlí. Erum svo heppin að vina hjón okkar eiga líka brúðkaupsafmæli á þessum degi nema bara 5 árum síðar sem þau giftu sig.


Hér kemur síðan með myndum af Herdís, á svo eftir að gera af Ellý, því nú þarf jú að gera af þeim báðum.


Hér er svo síða sem ég gerði í pappírs skrappinu, en við fórum á mánudaginn í góðra vinahóp í Heiðmörk í göngutúr og leik og áttum alveg frábæra stund þar saman. Herdís litla blómálfurinn minn fannst þessi ferð alveg æðisleg og var í essinu sínu. Síðan skannaðist ekki alveg nógu vel inn en læt það duga. Það náðust ekki margar góðar myndir af Ellý Rún þar sem hún var oftst að fela sig og leika úlf í skóginum.


1 ummæli:

Þórunn sagði...

æðislegar síður báðar tvær!!!