sunnudagur, ágúst 19, 2007

Fyrstu kortin af einhverri alvöru

Ég hef nú einhvern tíman gert kort áður en svo sem aldrei verið neitt súper ánægð með þau, einhver viðvaningsbragur á þeim fannst mér alltaf. En nún er ég búin að gera 4 stykki og sum eru jú með viðvaningsbrag en önnur er ég bara nokkuð ánægð með. Þetta er voða gaman og endar trúlega með dellu hjá mér eins og svo mörgum skrapppíum sýnist mér :-)

Hér koma kortin mín fjögur:

Þetta er fyrsta kortið og er nú bara svona lala finnst mér, var bara gert til að prófa böggið mitt.



Þetta er með kínaþema, enda undir miklum áhrifum frá því landi dagsdaglega :-) er stimplað með gylltu bleki en skannast ekkert voðalega vel.

Þriðja kortið sem ég gerði og er stimplað með stimpli úr SG kittin, einn af þeim sem ég hef fengið úr því og aldrei notað, úff. klippti út úr hjartanum og skellti útprentun af músinni þarna undir.

Það síðasta sem ég gerði í morgun blágærni grunnurinn er gerður svona með bögginu mínu æðislega :-) og músarmyndin er nú bara útprentun af myndinni þar sem ég á enga svona flotta stimpla :-( verð trúlega að fara í stimplaleiðangur á netinu fljótlega ef kortin ná tökum á mér. Til hamingju er prentað út og svo er smá rubon á þessu líka. Bara nokkuð ánægð með þetta kort, er bara allt að koma hjá mér, svei mér þá. Æfingin skapar meistarnann.



Nú ætla ég að reyna að skella í eitt jólakort á meðan litla daman sefur og sú eldir dundar sér frami :-)

Öll komment vel þegin, góð sem slæm

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá mér finnst þau bara æðislega flott hjá þér :)
kv. Björk

Hildur Ýr sagði...

Þau eru algert ÆÐI þessi... Er hrifnust af þessu neðsta :):)

Nafnlaus sagði...

Finnst þetta alveg æðisleg kort hjá þér :Þ

Nafnlaus sagði...

Mjög flott kort hjá þér og ekki mikill byrjendabragur að mínu mati ;) ....já maður verður alveg húkt á þessari kortagerð :)

Gogo sagði...

Vá mín fyrstu kort voru ekki svona flott :)

Nafnlaus sagði...

Æðisleg kortin þín:O)

Nafnlaus sagði...

klikk flott hjá þér og engin byrjendabragur á þessu ,langt frá því

Þórunn sagði...

geggjuð kort hjá þér!!!

Nafnlaus sagði...

Þau eru æðis!!