miðvikudagur, apríl 11, 2007

Kláraði þessa í gærkveldi, hún skannaðist reyndar eitthvað illa hjá mér og litirnir koma eitthvað illa út í bakgrunninum á henni, sjáum til hvort ég næ að laga það eitthvað.
Þessir skór eru mjög merkilegir í augum dóttir minnar, eru nýir og hún tekur ekki í mál að fara í þeim út, eru bara skór til að vera í inni. Fer með þá með sér í poka á milli staða. Þeir eru svo æðislegir að hún vildi sofa með þá fyrstu næturnar og þeir félagar Karíus og Baktus fengu að gista í þeim, því ekki vildu hún leyfa þeim að gista í tönnunum sínum. Þeir eru víst að hugsa um að gerast grænmetisætur því þeir fá ekkert nammi í hennar munni. Ekki einu sinni páskaegg fengu þeir. Versta er að hún borðar trúlega jafnlítið grænmeti og sælgæti. Hún er búin að búa til mikið ævintýri um þá félaga og dvöl þeirra í skónum, enda með gott ímyndunarafl daman sú.

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Geggjuð síða hjá þér, gaman að kíkja við á blogginu þínu

kveðja Sara

Gogo sagði...

Æðisleg síða hjá þér og fyndin saga :)

Kveðja Gógó

Þórunn sagði...

æðisleg síða!!!

Hanna Dóra sagði...

Hæ .
Siðan er virkilega falleg.
og myniginn á bakvið hana eithvað sem ekki má gleima og verður gamann að rifja upp með skottuni þegar hún eldist.
Kv Hanna D

Nafnlaus sagði...

wow þessi síða er æðisleg og sagan á bakvið þessa skó hehe bara skondin stelpa

Nafnlaus sagði...

Æðisleg bara, rosa sæt síða!

Nafnlaus sagði...

vá þessi er æðisleg :)

flott dúttlið hjá þér :)

kv. Begga

Sandra sagði...

Vá hvað þetta er flott síða!! Æðisleg sagan :)

Nafnlaus sagði...

Æðisleg síða og skemmtileg saga:O)

Lilja sagði...

Frábær síða og skemmtileg saga! Flott mynd líka.

Nafnlaus sagði...

Geggjuð síða og skondin saga á bakvið hana.
Kv. Ólöf Birna

hannakj sagði...

Ferlega skemmtileg síða!! krúttað mynd. Þú ættir að bæta við journal á síðuna með sögu bakvið myndina.