Hopp kostar koss
Síðurnar koma alveg á færibandi hjá mér þessa daganna, enda í algjöru skrapp stuði og fékk smá skrapp frí í dag á meðan heimilsfaðirinn fór með dæturnar í skemmtireysu um bæinn. Hann flakkaði á milli andartjarna í von um að einhverjar endur og gæsir vildu brauð, en hvorki Reykjavíkurendur eða Kópavogsendur voru svangar og því enduðu þau bara á opnu leiksvæði að leika sér og komu svo köld og sæl heim í kotið aftur og ég búin að gera þessa síðu á meðan. Þrátt fyrir syfju og þreytu eftir að hafa vaknað rúmlega 6 í morgun og búin að þrífa íbúðina í dag þá var ég harðákveðin í að nota tíman vel í að skrappa en ekki leggja mig, nóg tími til að sofa í ellinni, eða ég rétt svo vona það.
Síðan er unninn eftir LO frá henni Beggu, sem er ein sú færasta í LO gerð í það minnst hér á landi og þó víða væri leytað. Síðan fer í keppni sem hún heldur á skrappspjallinu sínu þar sem kostið verður um hver gerði flottustu síðuna eftir LO. Hef reyndar séð nokkrar í keppninni sem eru flottari en mín, en gamli ungmannfélagsandin gildir hér eins og í öðrum keppnum, bara gaman að vera með, sigur ekki allt í lífinu. Pappírinn er eins og svo oft áður Basic Grey og skrautið héðan og þaðan, mest þó héðan.
Sagan á bakið myndirnar er að þeim systrum finnst voða gaman að láta pabba sinn halda á sér og hoppa með sig í fanginu. Til þess að hann geti hoppað þarf hann fyrst að fá einn koss frá þeim og svo eftir hvert hopp til að hlaða batteríin, við þessi hopp skríkja þær úr kæti og hlæja sig máttlausar. Geypilegt fjör hjá þeim eins og alltaf.

6 ummæli:
En ÆÐISLEG! svipurinn á þeim fékk mig sko til að brosa út að eyrum :D Síðan er rosa flott, layoutið hennar Beggu er alveg snilldar flott!
Flott síða og skemmtilegt pabbahopp. Sí jú Rós
Æðisleg síða hjá þér, og rosa flottar myndir!
Að vanda mjög flott Gilla -
kv. Diana
Mjög flott síða hjá þér og mun sóma sér vel í keppninni :) Get ímyndað mér að það sé mikið fjör að fá svona hopp með pabba :)
hehe skemmtilegar myndir og æðislega falleg síða
Skrifa ummæli