mánudagur, apríl 16, 2007

Ískápsdansinn

Þær halda áfram að verða til hjá mér síðurnar, og hér kemur sú nýjasta. Þessi er með myndum af henni dóttir minni yngri að dansa ísskápsdansinn, sem hún tekur stundum. Frá því hún kom heim með okkur þá hefur hún verið mjög svo hrifin af ísskápnum og er mikið í því að opna hann og fá sér sæti þar inni, mundi trúlega loka honum á eftir ef hún gæti. Þennan daginn tók hún með eindæmum góðan dans við ísskápinn og miklar dífur. Auðvitað er nauðsynlegt að standa upp á þessum græna dalli þegar maður tekur svona snúning.



Í síðuna notaði ég pappír úr Basic grey í 6x6 blokk og klippti út með munstursskærum sem eru að detta aftur inn í tísku, baksíðan er líka Basic grey en titillinn er frá MM (making memory) Svo voru auðvitað notaðir flottur dútl stimplarnir mínir nýju og ekki sé talað um bling steinarnir mínir sem ég fjárfesti í dag í. Fór sem sagt í Föndru og fann þessa líka flottu steina og keypti eina 1050 steina, í nokkrum litum og nokkrum gerðum. Vá hvað ég get skreytt síðurnar mína næstu vikurnar. Verða allir komnir með bling í augun, hehe. Lo er hannað af mér, bara svona út í loftið.


7 ummæli:

Sandra sagði...

Flott síða :) geggjað allt blingið og myndirnar svo fyndnar :D Hún er nú meiri dúllan í ísskápnum!

Þórunn sagði...

skemmtileg síða!

Una sagði...

hahahaha dúllan!! flottar motturnar - er svo hrifin af síðunum þínum :o)

hannakj sagði...

Ótrúlega sæt síða!!

Nafnlaus sagði...

Ekki smá krúttlegt allt saman.

Nafnlaus sagði...

beautiful !!!!! frábær síða hjá þér

gleðilegt sumar

Skrappheimurinn minn sagði...

Þetta er alveg snilldarsíða hjá þér.

Kv. Sandra Óm.