Tók stóra skrapp ákvörðun í kvöld.
Stærsta vandamálið hjá mér í að koma mér í að skrappa er að velja myndir. Ekki það að ég eigi svona fáar, á nokkra tugi þúsunda mynda að velja úr og það er stór hluti af vandamálinu erfitt að velja úr þeim öllum. Annar hluti af vandamálinu er að ákveða hvort ég vilji gera sumar síður í pappírs skrapp eða tölvuskrapp. Þær sem ég veit að litar hendur eiga eftir að fletta mikið í gegn og ég vill geta prentað út aftur og aftur vil ég gera í tölvuskrappi og eins þær sem ég vill geta gert tvö eins albúm. Eins og fyrir þær vinkonur Ellý og Auði, síður með myndum af þeim saman fara flestar í tölvuskrapp.
Ákvörðun kvöldsins var að skrappa Danmerkuferð okkar frá því i fyrra í 8*8 albúm handa Ellý, þá get ég bara prentað út allar þær myndir sem ég ætla að nota og svo bara skrappað þær þar til albúmið er tilbúið. Svo er bara að finna næsta verkefni og halda þannig áfram. Gekk best að skrapp þegar ég var að vinna í Kínaferðalaginu okkar nr. 1, þá gekk mest undan mér. Ég þarf svo að fara byrja á albúmi fyrir næstu ferð í sumar. Af nógu að taka svo mikið er víst og ég trúlega verð lengi að ná í skottið á mér og klára að skappa allar myndir til dagsins í dag.
Þá er að bretta upp ermarnar og byrja að velja myndir, en áður en ég byrja að skrappa þær ætla ég að gera tvær 12x12 síður með snúllunum mínum. Þær koma vonandi um helgina hér inn.
miðvikudagur, apríl 04, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
til hamingju með nýja skrappbloggið þitt!!
Ég kannast við svona valkvíða, hér á bæ eru líka til nokkur þúsund myndir og ég er í vandræðum með að skrappa myndir af Andra því þær eru allar á pappír...og ég get ekki ákveðið hvort ég á að nota orginalinn eða að skranna þær inn (O_O)
Rosa flott skrafliftsíðan þín, ég er ekki enn búin að gera mína ;-)
Til hamingju með bloggið. Kannast sömuleiðis við valkvíðann, reyni að leysa hann á þann hátt að skrappa í tímaröð. Vandamálið er bara það að ég tek of margar myndir fyrir skrapphraðann - og svo eru allar myndirnar sem ég tók áður en ég byrjaði að skrappa. Sem sagt, vonlaus barátta...
Skrifa ummæli