Gæti grátið...
.. eða í það minnsta felt nokkur tár. Ég er búin að safna að mér dágóðu safni af digital skrappdóti og setja á flakkarann minn og hafði lika vistað allar siðurnar sem ég hef verið að gera síðustu vikur á honum. Í gær var ég eitthvað að selflytja tölvuna og flakkarann á milli borða og BÚMM flakkarinn datt í gólfið. Mátti ekki vera að því að pæla neitt í því akkúrat þá, en setti hann svo í samband í gærkveldi og UHHHHH ekkert gerðist. Talvan bara fann ekki flakkarann. Þá var að kalla á tölvuséníið mitt sem alltaf getur lagað allt fyrir mig sem mér tekst að klúðra en viti menn hann gat ekki gert neitt, diskurinn bara ónýtur, handónýtur og ekki hægt að laga. Fékk að heyra að maður ætti ekki að henda svona diskum í gólfið, það færi ekki vel með þá, hummm ég vissi það ekki, hafði alltaf hent honum í gólfið nokkrum sinnum á dag. ARG í GARG.

Mér til mikils happs og það sem kom til þess að tár mín urðu ekki mjög mörg var að ég var ný búin að afrita næstum allt eða um 90% af öllum digital kittunum mínum yfir á tölvu vinkonu minnar, öllu nema Template safninum mínu sem ég verð trúlega að fara í að safna aftur, gæti þó verið að þau leyndust á tölvu hjá annarri vinkonu minni. Þökk sé Lilju digital séní og hennar bloggi þá get ég nálgst því sem ég var búin að safna þaðan aftur. Fékk svo nýjan flakkara í dag með þeim skilyrðum að ég mætti ekki henda honum í gólfið og yrði að fara vel með hann. ÚFF ætli maður verði ekki að reyna standast þá freisn að henda þessum í gólfið eins og hinum. Er komin með vinkonuflakkarann í hendurnar og nú er bara að copera yfir aftur og endurgera nokkrar síður.
Eins og ég var búin að sjá að tölvuskrappið væri á margan hátt þægilegra en pappirsskrappið þá gleymdi ég að taka inn í dæmið að maður gæti átt það á hættu að missa út alla sina vinnu við eitt svona slys. Pappírsíðurnar hverfa ekki svona, en maður getur jú eyðilagt þær á annan hátt.

7 ummæli:
(O_O) úff!!! eins gott að eiga góða að þegar svona gerist!! Segir manni það bara enn og aftur að það er NAUÐSYNLEGT að geyma öryggisafrit af digikittunum hjá vinum!!!!!
Ó nei! garg :( þvílíkt sorglegt...
Ég var að klukka þig á blogginu mínu... endilega kíktu :)
kv. S
Sem betur fer varstu með megnið af þessu í annari tölfu annars hefði ég nú bara grátið með þér :/
úff gott að það tókst að bjarga einhverju :O/
jæks :/ ömurlegt að lenda í þessu.. annars hurfu ansi margar ljósmyndir hjá mér þegar talvan mín fékk vírus :( og það var ekki hægt að bjarga neinu
En sú hræðilegheit!! Maður fær bara sting í hjartað og fer yfir það í huganum hvort maður sé ekki örugglega búinn að bakka allt upp!!
Ég reyni að geyma photoshop skrárnar á öðrum stað en útprentunarhæfu jpg skrárnar - svo ef annað fer þá á ég allavega hitt.
úff, hræðileg tilhugsun enn gott að vinkona gat bjargað þér :) frábærar síður sem þú ert búin að vera að gera :)
Skrifa ummæli