sunnudagur, maí 27, 2007

Farin og búin að vera....
... ekkert hægt að gera, annað en að fara í bólið og sofa þar til tími er til að vakna og skella sér út á flugvöll og taka næstu flugvél til Danmerkur og vona að þar verði sól og hiti næstu 3 vikurnar. Hér er allt búið að vera á fullu að pakka á milli þess að maður sígur upp í nef sér og tekur nokkar hóstakviður og snýta yngsta fjölskyldmeðliminum. Náðum fjölskyldan í þetta fína kvef svona rétt fyrir brottför, náðum þó að pakka og mæta í fermingarveislu í dag í Grundarfirði. Núna á allt að vera komið í töskurnar og bara eftir að fara í huganum hvað það gæti mögulega verið sem við erum að gleyma, alltaf sama tilfinningin sem fylgir manni úr hlaði. Er voða stólt af mér hvað ég náði að pakka litlu niður miðað við það að ég er að pakka niður fyrir fjóra plús smá Cherioos og rúsínur handa dönsku íslendingunum okkar að ógleymdum íslenska fánanum svo þau geti nú flaggað á 17. júní og öðrum titli dögum.
Hef ekki skrappað síðan í diskurinn minn góði féll í yfirlit og vaknaði ekki aftur, en hver veit hvað gert verður í danaveldinu á góðum kvöldum, tölvan með og ný flakkarinn líka, búin að fá afrit af öllu aftur og ekkert að vanbúnaði. Sjáum hvað setur svo, ef ég verð dugleg þá kaffæri ég blogginu með nýjum síðum. Verður trúlega ekkert netsamband þar sem ég verð til að blogga en ef svo verður ætla ég að reyna að hanga ekki á netinu en hendi kannski inn einni og einni færslu með síðum sem ég geri. Sjáum hvað setur.
Segi bara bless í bless og hafið það gott og vonandi fer hitastigið hér á landi hækkandi á meðan ég heiðra dani með nærveru minni, þannig að við þurfum ekki að framlengja dvöl okkar þar mikið.
Hilsen

4 ummæli:

MagZ Mjuka sagði...

Vonandi skemmtið þið ykkur vel og hafið átt góða ferð út. :)

stína fína sagði...

vonandi er fjör hjá ykkur og betra veður en hér á blessuðum klakanum ;O)

Unknown sagði...

Góða skemmtun úti og vonandi fáið þið gott veður út og góða ferð.

Kv. Inger Rós

Saeunn sagði...

Vonandi hafið þið það gott úti :)