Allt tekur sinn tíma
Jedúramía, hvað tímin líður hratt, það er komin mánuður síðan ég skrifaði hér síðast og þá þóttist ég ætla að taka mig á. .....hér líður langur tími frá því ég skrifa fyrstu setninguna þar til ég skrifa þetta hér... Já, ég er búin að fatta út af hverju ég skrifa svona sjaldan hér inn, það vantar tíma og frið til að komast í að skrifa heila færslu án truflunar. Ég byrjaði sem sagt á að skrifa þessa færslu að mig minnir upp úr hádegi á meðan lítil dama svaf, sú stóra var heim í dag þar sem mér fannst hún hósa ferkar mikið í morgun, en þegar til kom þá hætti hún að hósta þegar ég var búin að hringja upp á leikskóla humm. Við höfuðum það bara notarlegt hér heima og fengum góða gesti seinnipartin, en frá því ég byrjaði að skrifa þessa færslu og þar til nú um 10 tímum síðar hefur verið alveg nóg annað að gera en að skrifa á bloggið, svona eru nú flestir dagar hjá manni. En alltaf gott að hafa nóg að gera í krinum tvær litlar skottur. Og þegar maður nær að setjast niður reynir maður að gera eitthvað í skrappinu.
Ég náði nú að gera eina síðu í gær með því að setjast niður í hvert sinn og færi gafst og rúmlega það. Myndirnar eru svo lýsandi fyrir vináttu þessara tveggja stelpna, þær eru svo miklar vinkonur.

Ég notaði í þessa síður kitt sem heitir Beautiful Journey og er eftir Michelle Coleman. Skrautið og síðan sem er í mottunni undir myndunum er reyndar frá öðrum kittum héðan og þaðan. Ég notaði template en tók mest af því sem þar var út nema myndirnar tvær og hringinn, finnst oft gott að nota þau sem grunn og breyta og bæta svo sjálf við, enda hef ég alltaf átt erfitt með að fara eftir uppskriftum. Sá þennan texta á ensku og fannst hann alveg smella við þær stöllur og snéri honum yfir á hið ilhýra, er svo lítið fyrir enskatexta á síðunum mínum :-)
Ég gerði líka þessar tvær hér að neðan en það er svo langt síðan að ég var búin að gleyma þeim sjálf, trúlegar gerðar í ágúst lok, mann ekkert úr hvað kittum þetta er og nenni enganvegin að grafa það upp :-(


Núna er ég að skrappa svona litla myndakassa sem ég tek myndir af þegar ég er búin með þá, þeir eiga að að vera gjafir handa góðum vinum, smá þakkargjöf. Ég verð trúlega að gera þannig kassa líka handa Ellý því henni finnst þær bara æðislegir og vildi nú helst bara fá að eiga þá sjálf. :-) Jú, svo er ég búin að gera nokkur kort líka en ekki búin að skanna þau inn ennþá :-(.
Ég bíð svo eftir frekar stórri sendingu með stimplum í jólakortin og missti mig svo í pöntunar lista með stimplum og pappír í kort og á því von á öðrum pakka líka, svo núna verð ég að vera dugleg að skrappa í pappír og gera kort til að hreinsa til í samvisku minni yfir þessu kaupæði í mér :-) En ég fékk jú svo góða kaupkvatningu frá elskunni minni þannig að ég get kennt honum um þetta allt :-)